Í þessu verkefni þjálfa nemendur lestur, hlustun og lesskilning. Verkefnið samanstendur af texta, lesskilningsspili og spjöldum sem hægt er að raða í tímaröð.
Hægt er að vinna verkefnið þannig að nemendur lesa textann, læs nemandi les textann fyrir spilafélaga sinn eða kennari les textann. Þegar textinn hefur verið lesinn fara nemendur í lesskilningsspil sem inniheldur spurningar úr textanum.
Verkefninu fylgja spjöld sem innihalda alla söguna. Hér fyrir neðan eru nokkrar hugmyndir um notkun þeirra.
- Raða spjöldunum upp í rétta tímaröð, nemendur geta haft bókina/textann til að styðjast við.
- Æfa skrift/stafsetningu með því að skrifa textann upp.
- Finna nafnorð, sagnorð og lýsingarorð á spjöldunum, allt eftir aldri nemenda.
- Tveir nemendur spila saman. Spjöldin eru sett í bunka (setja aukaspjöld inn á milli textaspjalda) og nemendur draga til skiptis. Ef þeir draga textaspjald þá á að lesa textann upphátt fyrir spilafélagann. Ef mynd af Baldri að bora í nefið er dregin þá spyr sá sem dró, spilafélaga sinn spurningar úr textanum.
- Raða spjöldunum upp og búa til spilaborð. Setja aukaspjöld inn á milli textaspjalda. Þegar þau lenda á spjöldum með texta, þá lesa þau textann upphátt fyrir spilafélaga sinn, en þegar þau lenda á aukaspjöldunum þá þurfa þau að gera það sem stendur á þeim.